K65

Hugbúnaðarhús · Reykjavík · Stofnað 2022

Hátæknihugbúnaður fyrir íslenskar aðstæður

K65 ehf. hannar, byggir og rekur hugbúnað sem þjónustar íslenska stjórnsýslu, ráðuneyti og stofnanir. Við beitum gervigreind markvisst og á ábyrgan hátt, við þróun, öryggi, úttektir og daglegan rekstur.

Þrjár

vörur í daglegum rekstri: Lögvísi, Ritstjórinn og Þýðandinn

2022

stofnár

EES

sérhæfing í varanlegri og öruggri vistun og vinnslu innan Evrópska efnahagssvæðisins

Samfélagið

við tökum einnig virkan þátt í samfélagsverkefnum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni

Þjónusta

Það sem við tökum að okkur

Verkefnin eru sérvalin og sömu aðilar fylgja þeim frá fyrsta fundi alla leið í rekstur.

Nánar um þjónustuna

01

Snjallsjónvarp og streymi

Forrit fyrir Samsung Tizen og LG webOS, ásamt bakendanum sem heldur þeim gangandi. Sjónvörp setja þröng skilyrði: fjarstýring í stað músar, lítið minni og stýrikerfi sem uppfærast sjaldan.

  • Tizen og webOS
  • Beint streymi
  • Fjarstýringarviðmót
  • Bakendi og skyndiminni
02

Gervigreind á íslenskum texta

Íslenska er fámennt mál og hefur fá málgögn. Það sem virkar á ensku virkar sjaldan óbreytt á íslensku. Við smíðum leitar- og greiningarkerfi sem skilja beygingar, samheiti og vensl orða og vísa alltaf í heimild.

  • Efnisleit yfir stór skjalasöfn
  • Beygingar og samheiti
  • Útdráttur staðreynda úr texta
  • Samantektir með heimildatilvísun
03

Hugbúnaður fyrir hið opinbera

Kerfi sem vinna með viðkvæm gögn þurfa að standast skoðun áður en þau eru tekin í notkun. Við smíðum þau með persónuvernd að leiðarljósi: gögnin eru vistuð innan EES, persónuupplýsingar eru ekki geymdar og allar aðgerðir eru skráðar.

  • Mat á áhrifum á persónuvernd
  • Vinnslusamningar og undirvinnsluaðilar
  • Aðgangsstýring og aðskilnaður teyma
  • Innskráning fyrirtækja um Entra ID
04

Vöruþróun frá hugmynd í rekstur

Við fylgjum verkefnum alla leið: kröfugreining, hönnun, smíði, prófanir, uppsetning og rekstur. Lögvísi, Ritstjórinn og Þýðandinn eru okkar eigin vörur, smíðaðar frá grunni.

  • Kröfugreining og skjalfesting
  • Hönnunarkerfi og viðmót
  • Bakendi og gagnagrunnur
  • Sjálfvirkar prófanir
05

Rekstur og vöktun

Við tökum að okkur rekstur á því sem við smíðum: vöktun, skráningu, uppfærslur og viðbrögð þegar eitthvað fer úrskeiðis.

  • Vöktun og viðvaranir
  • Atvikaskráning
  • Uppfærslur og öryggisbætur
  • Afkastamælingar

Vinnulag

Forsendur í hönnun kerfanna

01

Gagnavistun innan EES

Vörurnar keyra innan Evrópska efnahagssvæðisins. Utanaðkomandi þjónusta er skjalfest og samningsbundin, og alltaf er hægt að slökkva á henni.

02

Persónuupplýsingar eru ekki geymdar

Ritstjórinn og Þýðandinn geyma engar persónugreinanlegar upplýsingar í gagnagrunni. Frumskjalið er aðeins til í minni og hverfur þegar vinnslu lýkur.

03

Aðgerðaskráning

Allar aðgerðir eru skráðar. Skráin geymir auðkenni og fjölda, aldrei innihald skjala.

04

Rekstur á eigin kerfum

Kerfin sem við smíðum eru áfram í okkar umsjón. Bakendinn á bak við sjónvarpsöppin hefur verið í okkar höndum frá 2023.

Fólkið

Fólkið á bak við K65

Hjá félaginu starfa tveir sérfræðingar. Samskipti fara beint við þau sem vinna verkið, frá fyrsta fundi alla leið í rekstur.

Sverrir Sigmundarson

Hugbúnaðararkítekt

Hugbúnaðararkítekt og sérfræðingur í gervigreind með meira en tveggja áratuga reynslu af hugbúnaðarþróun á alþjóðlegum vettvangi. M.Sc. í tölvunarfræði með áherslu á gervigreind frá Háskólanum í Reykjavík og University of Alberta í Kanada.

LinkedIn

Rannveig Stefánsdóttir

Lögfræðingur

Lögfræðingur með sérþekkingu á EES-rétti, mannréttindum og stjórnsýslurétti. LL.M frá University College London. Hefur starfað við Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg og hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel.

LinkedIn


Samband

Hafðu samband

Sendu fyrirspurn og segðu okkur frá verkefninu þínu… eða prófaðu þetta.

k65@k65.is