K65

Öll verk02 / Eigin vara

Ritstjórinn

Afmáning persónugreinanlegra gagna fyrir birtingu, ásamt leitanlegu safni landaupplýsinga.

Verkefnið

Úrskurðarnefndir stjórnvalda birta úrskurði sína opinberlega. Áður en það gerist þarf að afmá allt sem gæti bent á umsækjanda: nöfn, fæðingardagsetningar, staðarheiti og upplýsingar sem saman mynda mynd af einstaklingi.

Þetta var unnið í höndunum, skjal fyrir skjal. Verkið er seinlegt og mistök verða ekki tekin til baka eftir birtingu.

Lausnin

Kerfið les Word-skjalið og finnur nöfn, fæðingardagsetningar og staðarheiti. Regluföst leit vinnur verkið án gervigreindar á innan við 200 millisekúndum. Sé kveikt á gervigreindinni finnur hún fleiri tilvik til viðbótar.

Notandinn samþykkir, hafnar eða bætir við, og kerfið setur [...] í staðinn áður en hreint skjal er birt. Í sama verkfæri fylgir leitanlegt safn landaupplýsinga úr fyrri úrskurðum, sem má afrita beint í Word-sniði og líma í drög.

Það sem skiptir máli
Yfirferð í stað handavinnuKerfið finnur sjálfvirkt nöfn, fæðingardagsetningar og staðarheiti, og notandinn fer yfir í stað þess að leita.
Byggt fyrir íslensk nöfnÍslenskar nafnvenjur og beygingar frá grunni, ekki þýdd lausn sem ræður illa við þær.
Sannreynanleg afmáningReglufasta leitin keyrir án gervigreindar á innan við 200 millisekúndum og gefur alltaf sömu niðurstöðu.
Gervigreind er valfrjálsViðbótarlag finnur fleiri tilvik ef kveikt er á því. Sjálfgefið er slökkt, og þá fer engin vinnsla fram utan EES.
Landaupplýsingar fylgjaLeitanlegt safn landaupplýsinga úr fyrri úrskurðum, með síu eftir landi og texta sem afrita má beint í drög.
Ekkert er geymtAðeins afmáða útgáfan er vistuð. Frumskjalið liggur hvergi eftir.
Tækni
  • Python
  • FastAPI
  • SQLAlchemy
  • asyncpg
  • PostgreSQL
  • Supabase
  • WebAuthn
  • Next.js
  • React
  • TypeScript
  • Tailwind CSS
  • Docker
  • Vercel
  • Render

Vinnslusamningur og mat á áhrifum á persónuvernd liggja fyrir.