K65

Um okkur

Fólkið á bak við K65

K65 ehf. var stofnað árið 2022. Hjá félaginu starfa tveir sérfræðingar og verkefnin eru sérvalin eftir því.

Sverrir Sigmundarson

Hugbúnaðararkítekt

Sverrir er hugbúnaðararkítekt og sérfræðingur í gervigreind með meira en tveggja áratuga reynslu af hugbúnaðarþróun á alþjóðlegum vettvangi. Hann lauk M.Sc. í tölvunarfræði með áherslu á gervigreind frá Háskólanum í Reykjavík og University of Alberta í Kanada, og B.Sc. frá Háskólanum í Reykjavík.

Hann ber ábyrgð á arkitektúr, smíði og rekstri allra kerfa K65.

LinkedIn

Rannveig Stefánsdóttir

Lögfræðingur

Rannveig er lögfræðingur með sérþekkingu á EES-rétti, mannréttindum og stjórnsýslurétti. Hún lauk LL.M frá University College London með áherslu á Evrópurétt og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.

Rannveig hefur starfað sem lögfræðingur við Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg og hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Hún hefur einnig starfað hjá Umboðsmanni Alþingis, Útlendingastofnun og Kærunefnd útlendingamála, og sem saksóknarfulltrúi hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Hún er stundakennari við lagadeild Háskólans á Bifröst og prófdómari við lagadeild Háskóla Íslands.

Hún ber ábyrgð á lögfræðilegri ráðgjöf, persónuvernd og regluvörslu.

LinkedIn


Vinnulag

Forsendur í hönnun kerfanna

01

Gagnavistun innan EES

Vörurnar keyra innan Evrópska efnahagssvæðisins. Utanaðkomandi þjónusta er skjalfest og samningsbundin, og alltaf er hægt að slökkva á henni.

02

Persónuupplýsingar eru ekki geymdar

Ritstjórinn og Þýðandinn geyma engar persónugreinanlegar upplýsingar í gagnagrunni. Frumskjalið er aðeins til í minni og hverfur þegar vinnslu lýkur.

03

Aðgerðaskráning

Allar aðgerðir eru skráðar. Skráin geymir auðkenni og fjölda, aldrei innihald skjala.

04

Rekstur á eigin kerfum

Kerfin sem við smíðum eru áfram í okkar umsjón. Bakendinn á bak við sjónvarpsöppin hefur verið í okkar höndum frá 2023.


Samband

Hafðu samband

Almennar fyrirspurnir og verkefnabeiðnir fara á k65@k65.is. Þjónustubeiðnir vegna sjónvarpsappa RÚV fara á support@k65.is.

K65 ehf., kennitala 630322-1030, Kambasel 65, 109 Reykjavík.