K65

Öll verk04 / Óháð verkefni, gefins

Sjónvarpsöpp fyrir efni RÚV

Sex öpp á Samsung og LG, byggð af eigin frumkvæði og gefin öllum. Styðja sjónvarpsárgerðir 2019 og nýrri

Verkefnið

Efni RÚV var ekki aðgengilegt í snjallsjónvörpum landsmanna. Enginn var að byggja lausnina og hún stóð ekki til boða.

Verkefnið var lagt til en varð ekki að viðskiptum. Öppin voru samt byggð, á eigin frumkvæði og eigin kostnað, og gefin þeim sem vilja nota þau.

Lausnin

Sex forrit á Samsung Tizen og LG webOS, hvert með viðmót sniðið að sínum notendahópi. Barnaefnið er einfalt og hefur hvorki valmyndir né leit, sniðið að yngstu notendunum. Beina útsendingin leyfir að fara allt að tvo tíma til baka.

Öppin eru gefins og er hægt að setja upp handvirkt á sjónvörpin, meðal annars gegnum Apps2Samsung. Virkni er staðfest á Samsung sjónvörpum frá árgerð 2019 og nýrri. Bakendinn sem miðlar gögnunum á stöðluðu formi er rekinn af okkur.

Öppin sex
Allt efnið í sjónvarpinu sjálfuEfnisveitan, beinar útsendingar, barnaefni, fræðsluefni og útvarp, án þess að þurfa síma eða tölvu.
Tveir tímar til baka í beinniHægt er að byrja aftur á þætti sem er þegar hafinn, eða spóla til baka í útsendingu.
Barnaefni sem yngstu ráða viðEkkert valmyndakerfi og engin leit, svo börn komast sjálf í efnið sitt.
Leit á íslenskuLeitað er í íslenskum titlum og lýsingum, með skjátextum og lista yfir það sem á að horfa á.
Studd tækiStaðfest virkni á Samsung sjónvörpum frá árgerð 2019 og nýrri, auk LG webOS.
GefinsÖppin kosta ekkert og hafa verið í notkun frá febrúar 2023.
Tækni
  • Samsung Tizen
  • LG webOS
  • React
  • TypeScript
  • Vite
  • Algolia
  • Python
  • JavaScript

Öppin hafa verið í samfelldri notkun síðan í febrúar 2023.

Úr appinu
Forsíða efnisveitunnar með kynningarborða og röðum af efni
Bein útsending með dagskrárás yfir myndinni
Barnaviðmótið í björtum litum, án valmynda og leitar

Skjámyndir úr öppunum. Efnið sem sést á skjámyndunum er í eigu RÚV og rétthafa þess og er hér sýnt til að lýsa virkni appanna.