K65

Öll verk05 / Samfélagsverkefni, sjálfboðavinna

Vasaskrímsli

Vasaskrímslin á íslensku. Samfélagsverkefni um læsi, unnið í sjálfboðavinnu.

Verkefnið

Lesskilningi íslenskra barna hefur hrakað og staðan er lökust hjá drengjum. Vandinn snýst oft síður um getu en um áhuga.

Efnið sem þessi aldurshópur sækir mest í er að mestu á ensku. Vasaskrímslin eru þar á meðal og voru ekki til á íslensku.

Lausnin

Verkefnið hófst sumarið 2024. Markmiðið er að styrkja og styðja við læsi ungra Íslendinga, og þá sérstaklega ungra íslenskra drengja.

Vasaskrímslin fengu íslensk nöfn, dregin af hefðbundnum og nýjum orðaforða. Þau fengu líka sína eigin sögu: þau komu til Íslands, féllu fyrir landinu og lærðu málið. Utan um það var byggt lestrarefni á mörgum getustigum, með það markmið að kveikja áhuga á lestri og íslensku.

Það sem skiptir máli
Efni sem börn vilja lesaVasaskrímslin á íslensku, með nöfnum og sögu sem tengja við það sem þau hafa þegar áhuga á.
Mörg getustigFrá einfölduðum byrjendabókum upp í lengri texta, svo hvert barn finnur efni sem það ræður við.
Komið í skólanaGjafabækur hafa verið sendar í 169 grunnskóla.
Orðsifjar fylgjaUppruni hvers nafns er skýrður, svo orðaforðinn situr eftir.
Ekki í hagnaðarskyniÖll vinna er sjálfboðavinna og efnið er selt á kostnaðarverði.
Vinnan
  • Midjourney
  • Canva
  • Adobe InDesign
  • Adobe Illustrator
  • WordPress
  • Háskólaprent

Verkefnið hefur notið stuðnings Samfélagssjóðs Landsbankans, Póstsins, Íslenskusjóðs Háskóla Íslands og Þróunarsjóðs námsgagna hjá Rannís.